| |
Um okkur
Það er upphafið að tilurð þessarar
síðu, að sameiginlegur áhugi fólks
fyrir náttúruvernd og áhyggjur þess af
því hve hugsunarlaust er oft gengið á verðmæti
náttúrunnar, leiddi það saman í Kiðagili
í Bárðardal miðvikudaginn 23. júlí
sl. Þar ræddi fólk um hvort enn myndu uppi hugmyndir
um virkjun Skjálfandafljóts og hverjar afleiðingar
virkjun þess hefði fyrir umhverfi fljótsins.
Það vitum við í raun ekki,
en það eitt vitum við fyrir víst, að við
höfum ekki hugmynd um hverjar afleiðingar orkufrekja
nútímans muni hafa í framtíðinni
og þess vegna er nauðsynlegt að sporna við t.d.
með því að vinna að verndun og friðlýsingu
Skjálfandafljóts. Það var gaman og viðeigandi
að hefja þá göngu úr Kiðagili.
Það var ákveðið að halda áfram
og markmið hópsins koma fram í svohljóðandi
fréttatilkynningu:
„Stofnaður hefur verið
áhugahópur um friðlýsingu Skjálfandafljóts.
Það er markmið hópsins að vinna að
friðlýsingu alls vatnasviðs Skjálfandafljóts,
stuðla að friðun og varðveislu landslags þess,
náttúrufars og menningarminja
ásamt því að það verði notað
til útivistar, ferðaþjónustu og hefðbundinna
nytja."
Lesendum þessarar síðu sem vilja taka
þátt í baráttunni fyrir verndun
og friðlýsingu Skjálfandafljóts eða
styðja málefnið með einum eða öðrum
hætti, er bent á að skrá sig undir
hnappnum ÉG STYÐ.
Hópurinn samanstendur af eftirtöldum:
|
|
| |
Sigurlína Tryggvadóttir, Svartárkoti í
Bárðardal
Guðrún Tryggvadóttir, Svartárkoti í
Bárðardal
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Sandi í
Aðaldal
Sigurður Ólafsson, Sandi í Aðaldal
Trausti Aðalsteinsson, Húsavík
Unnur Guðjónsdóttir, Húsavík
Aðalsteinn Örn Snæþórsson, Víkingavatni
Norðurþingi
Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir,
Víkingavatni Norðurþingi
|
Atli Vigfússon, Laxamýri
Huginn Freyr Þorsteinsson, Akureyri
Jón Heiðar Steinþórsson, Ytri-Tungu Tjörnesi
Ásta Svavarsdóttir, Hafralækjarskóla
Bjartey Sigurðardóttir, Álftanesi
Hróbjartur Sigurðsson, Árósum
|
|
| |
Talsmenn hópsins eru
Sigurlína Tryggvadóttir, skjalfandafljot@skjalfandafljot.is,
sími 821-5752, heimasími 462-5752
Trausti Aðalsteinsson, info@skjalfandafljot.is,
sími 864-0759
Um vefinn
Grafísk hönnun: Hróbjartur Sigurðsson
Forritun: Bjartey Sigurðardóttir, netfang: bjartey@internet.is
Ljóð á forsíðu er eftir Hólmfríði
Bjartmarsdóttur á Sandi í Aðaldal.
Ljósmyndir: Aldeyjarfoss í haus: Gísli Dúa,
aðrar myndir eru teknar af meðlimum hópsins.
Til baka á forsíðu |
|
|