Síðsumardagur við Hrafnabjargafossa

 

 

 

 

 

Um samtökin

Vefurinn www.skjalfandafljot.is var stofnaður til verndunar Skjálfandafjóts gegn virkjun.
Nánar...

 

 

 

 

Við bendum á...

[Frétt 3. apríl 2009]
Af friðunarmálum

Viðskiptavitið og framsýnin
Grein eftir Ástu Svavarsdóttur

Ljóðasíða

Facebook-síðan
Athugasemdir lesenda og fleira

 

 

 

 

Myndaalbúm

1 - Aldeyjarfoss og Hrafnabjörg

2 - Goðafoss og nágrenni

3 - Aðaldalur, hraun og votlendi

4 - Við ósinn

5 - Ýmsar

 

 

Hrafnabjargafossar freyða
fjallamjólk um gljúfrin rennur.
Á mjúkum línum hárra heiða
himinssólareldur brennur.
Upp með fljóti á aurum gráum
eyrarós ber sumarskrúða.
Á stuðlaberg í hamri háum
horfi ég gegnum fossins úða.

Úfin hraun með hella í leynum
hafa andlit, grettar vættir.
Á silkimjúkum sorfnum steinum
sýnast einnig vera gættir.
Upp með fljóti á eyrum sléttum
ærnar hamast við að bíta.
Undir barði og bláum klettum
blómstrar mýrarsólin hvíta.