| |
Tvö stærstu orkufyrirtækin í opinberri
eigu skulda 550 milljarða króna |
|
| |
Fréttatilkynning
frá Framtíđarlandinu
þann 12. október 2008 |
|
| |
Fjármálageirinn skilur nú eftir sig sviðna
jörð eftir glórulausa framgöngu síðustu
ára þar sem farið var af stað af meira kappi
en forsjá. Lög, reglur og eftirlit virðast hafa
skort og þegar alþjóðlega lausafjárkreppan
hófst kom í ljós að bankarnir höfðu
þanið sig um of og allt hrundi til grunna. Í framhaldinu
hafa heyrst þær raddir að nema eigi allar hömlur
úr gildi þegar kemur að nýtingu auðlinda
okkar, bæði á landi og í sjó. Þær
heyrast frá þeim sömu og leyfðu hömlulausa
skuldsetningu í nafni þjóðarinnar, að
henni forspurðri – svo hleypur á þúsundum
milljarða. |
|
| |
Lánstraust Íslendinga
Lánstraust Íslendinga er skaddað eftir miklar
fjárfestingar sem að mestu leyti hafa verið fjármagnaðar
með lánum. Lánshæfiseinkunn ríkisins
hefur lækkað og óvíst er talið að
íslenskir bankar geti staðið við skuldbindingar
sínar í útlöndum. Sparifjáreigendur
hafa þegar orðið fyrir tjóni og hætta
er á að skattborgarar fái einnig hluta af reikningnum.
Það er áhyggjuefni að velmetnir talsmenn hagsmunasamtaka,
álitsgjafar og jafnvel bankastjóri séu þegar
farnir að leggja drög að því að leysa
vandann með stórkostlegum nýjum fjárfestingum
og lántökum. Formaður Samtaka atvinnulífsins
hefur rætt um 1.000 milljarða fjárfestingu í
stóriðju og fleiri stórum verkefnum. Stóran
hluta af þessari fjárhæð yrðu íslenskir
skattgreiðendur væntanlega að taka að láni
í útlöndum. Það eru einkennileg viðbrögð
við skertu lánstrausti að stofna til nýrra
skulda fremur en til dæmis að fara sér hægt
um sinn og endurvinna traust.
Fjárfesting Íslendinga í tveim stórum
orkufyrirtækjum, samkvæmt árshlutareikningum
frá júní 2008 og skráðu gengi bandaríkjadals
hjá Seðlabankanum 10. október, nemur rúmum
800 milljörðum króna, 2½ milljónum
króna á mann, eða ríflega 7½ milljón
á þriggja manna fjölskyldu. Þar af eru skuldir
ríflega 550 milljarðar króna, 1,8 milljónir
á mann, eða rúmar 5 milljónir á
hvert þriggja manna heimili. Tekjur fyrirtækjanna eru
að langstærstum hluta bundnar við álverð
sem fer nú hríðlækkandi. Komi til alvarlegrar
heimskreppu verður það ennþá lægra
og áhættan alfarið Íslendinga, eina ferðina
enn.
Fjármálaráðgjafar hafa margir hverjir
gefið glannaleg ráð undanfarin ár, en þó
er líklega leitun að þeim ráðgjafa sem
ráðlegði fjölskyldu með slíka eigna-
og skuldastöðu að stofna til meiri skulda í
sömu atvinnugrein. Einhverra hluta vegna telja sumir þó
eðlilegt að gefa heilli þjóð þessi
ráð. |
|
| |
Útflutingsverðmæti og framlag til þjóðarbúsins
Rætt er um nauðsyn þess að auka útflutning
og sérstök áhersla lögð á álið,
það sé nú að nálgast sjávarútveg
hvað útflutningsverðmæti varðar. En þótt
útflutningur sé mikilvægur, er hann alla jafna
ekki merkilegri framleiðsla en hver önnur.
Hér verður þó að hafa nokkur atriði
í huga. Í fyrsta lagi eru hráefni mjög
dýr í álframleiðslu. Þau eru keypt
frá útlöndum. Álver hér á
landi eru í eigu útlendinga og arður af álbræðslu
fer úr landi. Virkjanir eru í eigu Íslendinga,
en yfirleitt hefur orkuverð ekki nægt fyrir miklu meira
en vöxtum af lánum vegna virkjananna og rekstrarkostnaði
(sjá til dæmis skýrslu Páls Harðarsonar,
„Mat á þjóðhagslegum áhrifum
stóriðju á Íslandi, 1966-1997, sem var
unnin fyrir Landsvirkjun, 1998). Lánin eru erlend og vextir
fara því úr landi, en rekstrarkostnaður
er bæði innlendur og erlendur.
Afkoman er breytileg, en yfirleitt stendur
ekki mikið eftir þegar fjármagnskostnaður og
rekstrarkostnaður hefur verið greiddur. Laun starfsmanna
í álverum og skattar eru líklega langstærsti
tekjuliðurinn sem verður eftir í landinu af álframleiðslunni.
Árið 2006 nam framleiðsla málma hér
á landi um 70 milljörðum króna að framleiðsluvirði.
Laun og tengd gjöld voru tæpir 7 milljarðar króna.
Tekju- og eignarskattar námu að líkindum nálægt
3 milljörðum króna. Til samanburðar má
nefna að laun og tengd gjöld í sjávarútvegi
námu tæpum 50 milljörðum króna árið
2006.
Að bera saman hreinar útflutningstekjur af mismunandi
framleiðslu án þess að tilgreina hvað verður
eftir í landinu er til þess fallið að valda
ranghugmyndum meðal landsmanna. Aðeins brotabrot af framleiðsluvirði
málma hér á landi verður eftir í
hagkerfi okkar Íslendinga. |
|
| |
Lágt tæknistig – lág framleiðni
Framleiðsluaðferðin sem notuð er í álbræðslu
var fundin upp á 19. öld. Aðferðin er kennd
við upphafsmenn sína; Bandaríkjamanninn Charles
Martin Hall og Frakkann Paul Héroult sem fundu hana upp hvor
í sínu lagi árið 1886. Aðferðin
er sáraeinföld rafgreining og hefur lítið
breyst síðan hún uppgötvuð. Tæknistigið
er því til þess að gera lágt og afurðin;
þ.e. ál (Al), er frumefni og býður ekki
uppá mikla vöruþróun. Engar forsendur eru
til að stunda slíka vöruþróun á
Íslandi – í öllu falli fer hún ekki
fram í stöðluðum verksmiðjum eins og hér
hafa verið settar upp. Vöruþróun í
framleiðslu málma krefst sérþekkingar og
samvinnu við þá sem nota munu afurðina. Sú
sérþekking er tæplega til staðar í
landinu og engin fyrirtæki sem þurfa slíka vöruþróun
og geta stutt við hana.
Þeirri skoðun hefur stundun verið haldið fram
hérlendis að stóriðja sé hátækniiðnaður
vegna þess að nýjasta tækni sé notuð
við framleiðsluna. Þetta er afar langsótt.
Menn nota nýjustu tækni í öllum atvinnuvegum
sama hvaða nöfnum þeir nefnast. Smábátaútgerð
hefur t.a.m. ekki verið kölluð hátækniiðnaður
hingað til þó menn noti stundum tölvustýrð
handfæri við fiskiríið og bílar eru
hátæknifyrirbæri þótt ekki teljist
það hátækni að aka slíkum. |
|
| |
Stóriðjuframkvæmdir og hvað svo?
Atvinnu- og efnahagsrökum hefur verið beitt markvisst
í þágu stóriðjuupbyggingar hér
á landi síðastliðin ár. Þegar
til langs tíma er litið breytir álver engu um
atvinnuleysi á landinu öllu. Atvinnuleysi ræðst
til langs tíma af grunnstærðum hagkerfisins, eins
og menntunarkostum og starfsþjálfun sem í boði
eru, lágmarkslaunum, atvinnuleysisbótum, styrk samtaka
á vinnumarkaði og fleiru. Einstök fyrirtæki
eins og álver breyta þar engu. Ef álver hefur
áhrif á fjölda starfa á tilteknu svæði
eða landinu öllu er það með flutningi fólks
sem ella hefði unnið annars staðar.
Að öllum líkindum á atvinnuleysi eftir að
aukast eftir atburði síðustu daga. Spurningin er
hvort störf muni skapast hjá fyrirtækjum sem hafa
átt erfitt uppdráttar í þenslunni, s.s.
sprotafyrirtækjum og fyrirtækjum í ferðaþjónustu,
eða með nýjum stóriðjuframkvæmdum.
Svara verður þeirri spurningu hvað taki við eftir
næstu stóriðjuframkvæmdir. Áður
en lagt er af stað í virkjana- og stóriðjuframkvæmdir
á forsendum atvinnu- og byggðasjónarmiða hlýtur
það að vera krafa okkar að álverið
á Reyðarfirði og virkjun við Kárahnjúka
sé skoðuð og ávinningur þeirrar framkvæmda
metinn m.t.t. íbúaþróunar, jafnréttis-
og kynjasjónarmiða, fjölgunar starfa, margfeldisáhrifa
og þar fram eftir götunum. |
|
| |
Lokaorð
Nú þegar talað er um að bretta upp ermarnar
og nýta auðlindirnar í hvelli er ekki úr
vegi að spyrja hvort það sé vilji okkar Íslendinga
að standa í svipuðum sporum með þær
eins og bankakerfið eftir nokkur ár. Að allt verði
fullnýtt og ofnýtt og að eftir standi sviðin
jörð – og hvað á þá að
gera? Eigum við ekki að skilja eitthvað eftir fyrir
komandi kynslóðir?
Framtíðarlandið hefur ítrekað bent á
það að hlutverk stjórnvalda í atvinnuuppbyggingu
sé að tryggja stöðugt efnahagsumhverfi, styrkja
grunngerð samfélagsins og skapa þannig öllum
atvinnugreinum góð skilyrði til vaxtar. Við þurfum
nú að læra að hugsa lengra fram í tímann
til að tryggja gott atvinnulíf og lífskilyrði
í landinu til frambúðar. |
|
| |
|
|
| |
|
|
| |
Til baka á forsíđu |
|
|