Af friðunarmálum Skjálfandafljóts

 
 

Aðalskipulag Þingeyjarsveitar

Í vetur kynnti sveitarstjórn Þingeyjarsveitar tillögu að aðalskipulagi þar sem fram kom að rædd hefði verið í nefndinni hugmynd að friðun Skjálfandafljóts og umhverfis þess sunnan Aldeyjarfoss og Hrafnabjargafossa, en ekkert ákveðið. Á aðalfundi sveitarstjórnar fyrr í haust kom fram að borist hefðu athugasemdir varðandi friðun "alls vatnasviðs" fljótsins sem er orðalag okkar í markmiðum hópsinsog birt er hér á síðunni. Í athugasemdunum er bent á að neðan fossanna, í byggð, séu fjöldi áa og lækja sem í fljótið renna og bændur nýta nú sem heimavirkjanir og vilji gera áfram.

Fyrirspurn

Í tilefni af þessum fréttum ræddi hópurinn hvort breyta ætti orðalagi í markmiði okkar (það er orðunum "allt vatnasvið") en ákvað fyrst að spyrjast fyrir um hlutafélagið Hrafnabjargavirkjun hf sem Þingeyjarsveit á hlut í. Sendi hópurinn fyrirspurn til skipulagsnefndar og sveitarstjóra um það hvort hlutafélagið Hrafnabjargavirkjun hefði enn uppi áform um að virkja Skjálfandafljót, og ef ekki, hvert væri þá markmið þess félags nú.

Eftirfarandi er svarið sem okkur barst frá sveitarstjóra Þingeyjarsveitar.

 

Svarbréf sveitarstjóra:

Hutafélagið Hrafnabjargarvirkjun hf. var stofnað til þess að virkja í Skjálfandafljóti. Þingeyjarsveit á lítinn hlut í því félagi. Á hluthafa- og aðalfundi félagsins fyrir skömmu lét ég koma fram að unnið væri að aðalskipulagi fyrir Þingeyjarsveit og ég teldi að það væri ríkur vilji fyrir því að ekki yrði virkjað í fljótinu og það friðað með einhverjum hætti. Einnig eru upp hugmyndir um jarðfræðitengda ferðaþjónustu á svæðinu og fer það væntanlega illa saman við virkjun. Niðurstaða fundarins var að halda félaginu enn gangandi en þeir sem að því koma vita að öll áform um virkjanir gætu hæglega verið slegin út af borðinu við gerð aðalskipulagsins. Gert er ráð fyrir Hrafnabjargarvirkjun í skipulagi hálendisins en ef Þingeyjarsveit kemst að annarri niðurstöðu gildir það. Það er hins vegar endanlega á valdi skipulagsnefndar og sveitarstjórnar hvort vilji sé til þess að hafa umræddan virkjunarkost inni á aðalskipulagi. Ég hef það á tilfinningunni að slíku verði hafnað. Ekki veit ég hvernig málið stendur gagnvart þeirri nefnd sem átti að vega og meta virkjunarkosti á Íslandi. Vonandi verður fljótlega hægt að kynna fyrstu drög að aðalskipulagi og þá kemur í ljós hvort sveitarfélagið verður með umræddan virkjunarkost inni eða ekki. Við verðum því að bíða og sjá.

 

 

 

 

 

 


 

 

 
     
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
 

Til baka á forsíðu