Framtíðarlandið opnar Náttúrukortið

 
 

17. september 2008

Framtíðarlandið hefur komið á fót upplýsingaveitu um þau svæði á Íslandi sem hafa verið nýtt eða fyrirhugað er að nýta til orkuframleiðslu. Upplýsingaveitan er á formi vefkorts sem fengið hefur nafnið Náttúrukortið og finna má á vefslóðinni www.natturukortid.is.

Náttúrukortið samanstendur af yfirlitskorti af Íslandi þarsem merkt eru inn þau svæði sem nú þegar hafa verið virkjuð sem og þau svæði sem áætlað er að virkja. Á kortinu kemur einnig fram hvar í "virkjunarferlinu" fyrirhuguð virkjunarsvæði eru, það er að segja hvort framkvæmdir séu hafnar, hvort svæðið sé "í sigtinu" fyrir raforkuframleiðslu eða hvort svæðið sé óraskað. Öllum svæðunum á kortinu eru gerð ítarleg skil með ljósmyndum teknum af einvala liði íslenskra landslagsljósmyndara auk náttúrufarsupplýsinga skrifuðum af fræðimönnum sem þekkja svæðin. Tilgangur kortsins er að vera fræðandi og upplýsandi miðill um virkjunaráform á Íslandi. Kortið verður endurskoðað og uppfært reglulega til að tryggja að viðeigandi upplýsingar verði ávallt aðgengilegar.

 
 

Tenglar:

Slóð Skjálfandafljóts á Náttúrukortinu

Framtķšarlandiš

 
     
     
     
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
 

Til baka į forsķšu